heidi
jeg..
""
Textabox
Textabox
05.03.2007 19:27:30 / heidi

ísland í augum bretans...

 

(ok, fjórar gangtegundir, fokk ðett skiluru)

 

  • íslendingar telja sjálfa sig vera komna af víkingum og halda því statt og stöðugt fram að það af sterkustu víkingum í heimi
  • íslendingar benda útlendingum alltaf á það að við eigum allt best og flottast, við eigum jú vatnajökul, stærsta jökul í evrópu, sem lætur franska Mer de Glace líta út fyrir að vera ísmoli. Fossarnir okkar eru stærri og flottari en allir aðrir í heiminum og þó svo að strokkur, stærsti "geysirinn" á íslandi sé ekki sá stærsti í heimi og miklu minni en sá sem er í yellowstone garðinum í bandaríkjunum, þá montum við okkur samt sem áður á því að þetta "phenomenon" sé nefnt í höfuðið á okkar fyrirbæri "geysers"
  • íslendingar eiga bestu hesta í heimi sem kunna ekki bara fjórar gangtegundir heldur fimm
  • allir verða að fylgja tískunni á íslandi og ef það er í tísku að vera í háum hælum með opinni tá er það engin fyrirstaða að það sé tíu sentimetra hátt snjólag úti, tískunni skal haldið uppi með rentu
  • allir á íslandi tala ensku en eru mis-tregir að tala hana
  • íslendingar eru alveg einstaklega "fegnir" því að selma hafi ekki unnið júróvisjón, vegna þess að það hefði alveg farið með budget þjóðarinnar, enda hefðum aldrei haft efni á því að halda næstu keppni! (einmitt)
  • íslenskir menn vinna mikið og eru yfir höfuð vinnuþjarkar í það minnsta, þeir treysta líka mikið á sjálfa sig og eru einstaklega sveigjanlegir, ótímanlegir og óþolinmóðir (sem útlendingnum finnst einmitt vera skrýtið kombó að koma of seint en vera brjálaður yfir því að næsti maður sé ekki kominn)
  • þó svo að ísland í augum útlendinga er eitt af fallegustu löndum í heimi, kemur það þeim mikið á óvart að ísland skuli ekki vera "green nation" eins og þeir kalla það og vitna í sambandi við það í hvalveiðar og kárahnúka, að öðra utanskildu
  • póltíkusar, í meira lagi, léleg vinna pólitíkusa er eitt af "obsession" íslendinga
  • íslendingar hafa gaman af því að segja útlendingum frá því að ef þeim líki ekki veðrið, eigi það eftir að breytast innan 15 mínútna og yfirleitt hafa þeir rétt fyrir sér og ef heppnin ef með þeim gætu þeir fengið allar fjórar árstíðirnar beint í æð
  • íslendingar fylgja tískunni fast eftir og byrjar það snemma á æviskeiðinu, ekki þarf meira en að keyra fyrir utan barnaskóla og þar muntu sjá nýjustu "trendin".
  • Ísland eiga flesta gsm-síma miðað við höfðatölu í allri evrópu, þú sérð allt niður í 7 ára krakka eiga einn
  • þegar plasma skárinn kom út, urðu allir íslendingar að fá sér eitt, skipti engu máli að þeir ættu sjónvarp sem virkaði fínt, því verður bara fundið góður staður í svefnherberginu eða eldhúsinu
  • allir á íslandi nota debit eða kredit kort, og þú getur notað kreditkort í minnstu sjoppu sem þú finnur til þess að kaupa einn tyggjó pakka, þeir sem greiða alltaf með seðlum og ganga um með mikið seðlabúnkt þykja öðrum vera skrýtnir og merkja þá sem annaðhvort þjófa eða dópsala
  • íslenskar fjölskyldur eru sérstaklega "close" allir þekkja alla frekar vel og eru ungir krakkar ekki lengi í skólanum heldur koma heim snemma og leika sér saman og oft á tíðum mega krakkarnir vera einir heima tímunum saman, þar sem íslendingar hafa engar áhyggjur af því að börnunum þeirra yrði rænt eða annað slíkt
  • það sem útlendingurinn skilur ALLS EKKI er það að íslendingar setja ungabörn út í kerru til þess að SOFA!! þetta er eitthvað sem engin önnur þjóð gerir og er vitað til þess að íslensk mamma búsett í þýskalandi fékk heimsókn frá barnaverndarnefnd í kjölfarið
  • íslenskir karlmenn eru ekki þekktir fyrir það að "tjatta" kvennþóðina upp til þess að fá þær í rúmið, já eða nei er miklu einfaldari samskipti og þar sem fólki í evrópu þætti eðlilegt að bjóða manni inn í kaffisopa og það gæti KANNSKi leitt til einhvers, er það bara sjálfsagður hlutur á íslandi að bjóða viðkomandi upp á kaffi eftir herlegheitin
  • íslendingar mæta þegar þeir hafa tíma eða "on time is any time"
  • íslendingar eru mjög vinalegir og skemmtilegir upp til hópa en sértu útlendingur staddur úti í búð, ekki vera á milli íslendings og afgreiðsludömunnar eða þú gætir átt von á ágætis olnboga ef þú drífur þig ekki áfram
  • íslendingar eru ekkert sérstaklega kurteisir, þeir eru ekki vanir að segja -góðan daginn, hvernig hefur þú það í dag. Nærri lagi svona -hæ! Allir eru tengdir á einhvern hátt vinna/hafa unnið saman eru/voru í skóla saman, eru skyld og svo framvegis svo að ferð út í búð getur tekið langan tíma. Mætirðu einhverjum sem þú varst með í skóla en talar ekki lengur við, ertu ekkert sérstaklega að splæsa í hæ
  • íslendingar eru ein af fáum þjóðum sem leyfa börnunum sínum að gista saman þ.e.a.s með kærasta/kærustu allt frá 14-15 ára aldri og eru útlendingar mjög hneikslaðir á þeirri staðreynd
  • hefðbundin afmæli með köku, heitum rétt, ostum og kexi og viðeigandi þykir bretanum vera eitthvað sérstakt. Þeim þykir það sérstaklega kósí og sniðugt, samt sem áður er ekki mikið gert úr þeirra afmælisdegi
  • íslendingum finnst sérlega gaman að eyða peningum, sérstaklega þegar þeir eiga enga
  • allir íslendingar elska sólarlönd
  • þorri íslendinga eiga sumarbústaði en ekki margir nota þá, þeir eru aðallega notaðir í sögustund handa fyrir nágrannana
  • íslendingar prófa allar íþróttir
  • allir íslendingar eiga bíl og það þykir alveg einstaklega dónalegt að setja út á aksturshæfni hvers annars
  • ÍSLENDINGAR HAFA HLÉ Í BÍÓ TIL AÐ KAUPA POPP OG PISSA!!!!
  • allir íslendingar vita hvað spaugstofan er
  • mikið af gömlu fólki setur ekki sykur út í kaffið sitt heldur setur sykurmola í munnin á sér og drekkur svo kaffið???
  • íslendingar hafa svartan og afar kaldhæðin húmor sem kaninn á oft erfitt með að finna sig í
  • þegar þú spjallar af viti við hvaða íslending sem er, bregst það ekki að í enda samtalsins er hann alveg 100% búin að segja þeir að íslandi ali fallegast kvenfólk heims og að við eigum 3 miss world! 
 
(þessi má nú alveg flokkast undir þá heitustu sem ég hef hitt) 

já, það er búið að vera svaka gaman að hafa hana hina írsku sharon hjá okkur, hún festi einmitt kaup á Xenophobes´s guide to the ICELANDERS sem ég las núna í snöggvast í einum rykk og var þetta það sem mér þótti standa upp úr, sem ég henti hér inn ásamt nokkrum kommentum frá vinkonunni
 
 
eflaust verða einhverjir íslendingar "reiðir" að lesa þetta um sjálfa sig, því við erum jú best og skemmtilegust í heimi, en þetta er allt í gríni gert og ef ég á að segja alveg eins og er, þá finnst mér þessum rithöfundi bara takast einstaklega vel að greina hinn hefðbundna íslending
 
 
hann tók það nú samt fram í lokin að mikið af efninu fékk hann með hjálp vel valinna íslendinga sem að furðulega vilja ekki láta nafns síns getið (broskall)

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 12:49:50 / heidi

er IQ ekki bara eitthvað kjaftæði....??

 

jesssss.... þetta þýðir að ég sé gáfuð.... held ég. Fann líka alveg út hvað ætla að verða nákvæmlega, i great jobs for you, ég ætla að verða uppfinningamaður og finna upp eitthvað eins og einfaldan hlut eins og bréfaklemmu, það var einmitt strákur með mér og hjördísi í frakklandi sem var sonur mannsins sem fann upp bréfaklemmuna, hann átti allavegana fyrir kokteilum sá fyr, segjum það bara, aðeins meira en eitt stk kronenberg

taktu prófið hér

verið samt þolinmóð, þetta tekur alveg smá...

 

 


Your IQ score is:

122122   You scored 122 on Tickle's IQ test. This means that based on your answers, your IQ score is between 112 and 122. Most people's IQs are between 70 and 130.
In fact, 95% of all people have IQs within that range. 68% of people score between 80 and 120. The following chart to your right, shows these percentages and where your IQ score is on that scale.

Print your Certificate of Intellectual Achievement.

There's more to intelligence than a single number, a single score or a single label. Tickle uses four distinguishable Intelligence Scales in the Ultimate IQ Test. By analyzing your individual scores on those four scales, we are able to look beyond the raw IQ score into how you process information and thereby determine your Intellectual Type.
  
How do you relate to other IQ test takers?



 

Your Intellectual Type Is:
Inventive Inquisitor    You have the unusual talent of being equally good at both mathematical and verbal skills. That, paired with your thirst to learn through experience, makes you an Inventive Inquisitor.

Your strength lies in the methodology you have naturally adopted to understand the world. Basically, you have perfected "learning through living." You have a unique ability to teach others by taking them through actual experiences. Your talents come in handy especially when confronted with unfamiliar or unproven situations. Most people search their brains for previously stored information that might help in a given situation. You, however, take things as they come and see things as they are. You are a great improviser and are probably open to an unusual amount of change.
Another Inventive Inquisitor who demonstrates this very point was Ben Franklin. He suspected that lightning was a naturally occurring electrical current and realized he was correct once he conducted his famous kite-flying experiment on a stormy night. This is the type of novel approach that keeps your perspective fresh. Chances are, it has also helped you develop an unusually worldly sense of things. You use your inherent wisdom to branch out from what others too quickly assume to be the most "rational" solutions. This talent enables you to approach things creatively instead of following the rigid paths of life.   
Great Jobs For You
Because of the way you process information, these are just some of the many careers in which you could excel:
  • Crisis Manager
  • Think Tank Consultant
  • Campaign Manager
  • Inventor
  • Creative Director
  • Teacher / Leader

Some of Your Greatest Talents
You've got tons of strengths. It wouldn't surprise us if you:
  • Spearhead new projects
  • Experiment without being discouraged
  • See the big picture
  • Teach or guide
  • Do work that is "hands-on" or has practical application

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 23:18:10 / heidi

hreðjar ?? hvað sagðirðu HREÐARJAR!!??

Get ekki játað það að ég sé mikið fyrir celeb skúbbið og celebworld.org, ja allavegana ekki eins mikið og kalla og pála í sumar, en þetta er bara einum of...
- BREAKING NEWS - 
 Misha dumps Cisco Over Naked Photos
Mischa Barton, 21, can’t handle the
naked truth about Cisco Adler.

A source tells Us Weekly the pair parted
ways after nude photos of Adler, 28,
surfaced on the Web.

This NSFW pic of Adler hanging loose,
which turned up among Paris Hilton’s
possessions when the contents of the
heiress’ unpaid storage locker were
posted online at parisexposed.com (the
site was later shut down).

Says a source, "They had a blowup.
She was furious."

Barton’s rep had no comment, and
Adler’s could not be reached.
_____________________________
skemmtilegt nokk! ,,she was furious" ég veit ekki með ykkur en ég veit ekki hvort ég yrði furious út af myndinni "per-sei" meira svona.... the thing being there yfir höfuð! nú hugsið þið hvað í andskotanum er hún að tala um??
hérna er kvikindið "hanging loose" í bókstaflegri merkingu...
HVAÐ Í ANDSKOTANUM ER Í GANGI!!! 

» 8 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 22:45:22 / heidi

sorgar saga....

það er nú ekki oft sem manni verður misboðið á þessu góða landi sem við búum í, en í þessu tilfelli var mér miðboðið og gott rúmlega það

tinna rut er lítil stelpa, (eða lítil, hún er 16 ára) sem var hjá mér í Ásnum í 10. bekk í fyrra, ótrúlega hress og skemmtileg, sæt og allt, algert æði! Hún lenti í því í lok síðasta vetrar að fá bráða heilahimnubólgu í miðjum samræmdu-prófunum. Þar af leiðandi var henni haldið sofandi í öndunarvél í hátt í tvo mánuði og var vart hugað líf. Þegar hún vaknaði voru líkurnar hennar á bata ekki miklar, en eins og kom fram hér áðan er þetta sú ótrúlegasta stelpa sem ég hef nokkurn tíma kynnst, hún gafst sko aldeilis ekki upp heldur fór eftir þónokkuð langa dvöl á barnaspítalanum í hörku endurhæfingu upp á grensás og hefur fengið fullan mátt í vinstri fót og hendi og alla fingur og virðist þetta vera að koma svona hægt og bítandi hjá henni. Nema auðvitað er leiðinlega staðreyndin sú að hún er föst við hjólastól. Sem hún að vísu sagði svo smekklega í viðtali við séð og heyrt í síðustu viku að hún ætlaði einfaldlega einn daginn ,,að henda á sorpu!" (broskall)  

þar sem mér þykir svo vænt um tinnu og finnst ég eiga ponsu hlut í henni þá dreg ég hana með mér út öðru hvoru að gera eitthvað skemmtilegt og það er einmitt það topic sem ég er einmitt að fara að koma að. Við fórum í síðustu viku í bíó, ákváðum að fara á little miss sunshine, sem var sýnd samkvæmt fréttablaðinu í regnboganum klukkan 20:20 og það stóð skýrt og greinilega : ,,ekki verður hleypt inn eftir þann tíma" Hef að vísu aldrei á ævi minni séð svoleiðis í tengslum við bíó-mynd en nú jæja.. svo að ég og hjördís fórum til tinnu og pikkuðum hana upp, þar sem hún var alveg fáránlega spennt og í góðu skapi og svona, eins og vanalega, og lögðum í hann.. Þegar við komum að Regnboganum voru nánast engin stæði að fá og skyggni einstaklega slæmt, mikil rigning og slabb, svo að hjördís henti okkur út, (því að klukkan var að verða 19 mín yfir) og við ætluðum bara að fara og festa kaup á miðana áður en það yrði of seint. Þegar ég er búin að setja tinnu í stólinn og keyra henni að bíó-inu eru bara 6 ágætlega stórar tröppur sem blasa við mér og ég svona, lít í kringum mig til þess að athuga hvort einhversstaðar í nágrenninu sé rampur fyrir hljólastóla en það virðist ekki vera. svo að ég (mér ekki til neinnar ánægju) tjái tinnu að ég þurfi að skilja hana aðeins eftir til þess að fá miða á myndina og pakka henni inn í úlpuna hennar betur. þegar ég kem inn, segi ég við fólkið: ,,3 miða á little miss sunshine" og þau bara: ,,við erum hætt að hleypa inn" þannig að ég spyr þau hvaða helvítis kjaftæði það sé, þar sem klukkan er ákkurat 20 mín yfir, þá segja þau tvö í kór :,,hún byrjaði klukkan átta" . Vá hvað ég var pirruð og reifst aðeins í þeim að hafa auglýsinguna ranga í fréttablaðinu en hætti þegar ég áttaði mig á því að þetta voru 14 ára krakkar og þetta var ekki að fara að hafa neitt uppúr sér, svo að ég spyr þau :,,er enginn hjólastólarampur hérna fyrir utan?" þau bara svona :,,nei! sorrí!" og ég hleyp út og byrja að reyna að ýta tinnu upp en get það ekki ein og það kemur enginn út að aðstoða mig frá regnboganum heldur standa þau inni og horfa á mig í gegnum glerið. Þá kemur kona, sem var, já, segjum bara bálreið æpandi : ,,ER ÞETTA EKKI ÁRIÐ 2007! HVAÐA HELVÍTIS FORNALDAR LANDI BÚUM VIÐ Í! ÉG Á SJÁLF FATLAÐ BARN HEIMA OG MÉR FINNST ÞETTA VERA ALGERLEGA TIL SKAMMAR! ÞÚ FERÐ MEÐ ÞETTA Í BLÖÐIN!" og spyr mig svo hvort ég þurfi ekki aðstoð, sem ég þygg, en hjördís kemur mér til hjálpar.. ok, við erum loksins komnar inn og búnar að ræða aðeins við konuna þegar ég sný mér aftur að heilalausa starfsfólkinu þarna og segi: ,,þrjá miða á night at the museum, fær hún samt ekki frítt?" og bendi á tinnu. Þá segir strákurinn mér að bíða aðeins og nær í aðeins eldri stelpu, þó ekki meira en tveimur árum eldri en hann, hún kemur og segir með svona væmnum tón :,,við erum ekki með aðstöðu fyrir fatlaði hérna" og horfir í áttina að tinnu.

vitið það, ég þarf eiginlega ekkert að segja ykkur hvernig ég horfði á hana til baka! ég bara svona váá TAKK FYRIR AÐ SEGJA MÉR ÞAÐ ÁÐUR EN ÞAÐ TÓK MIG 10 MÍN AÐ KOMA HENNI UPP! helvítis fífl! svo var hún alveg :,,eða þú mátt alveg tjékka hvort hún geti verið þarna" og babblaði eitthvað ógeðslega heimskulegt fram og til baka.. ég bara heyrðu, nei við ætlum ekki í þetta bíó! og gekk út!

 og þið hefðuð átt að sjá svipinn á greyið tinnu, pottþétt líðandi eins og allt sé hennar sök af því að hún er föst í hjólastól.

!!ég hef næstum því aldrei verið eins reið!!

á maður að fara í blöðin með svona??

tinna rut tekur nú öllu með svo mikilli jafnaðargeði að, að sjálfsögðu lét hún þetta ekkert slá sig út af laginu og við fórum bara á aðra mynd, erum líka að fara að sjá dream-girls saman á laugardaginn og það er nokkuð ljóst að regnboginn mun ekki verða fyrir valinu..


» 12 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 18:54:23 / heidi

merðir, helvítis merðir!

tilkynning!

ef þið eigið gang um smáralind og/eða kringluna eða einhvern álíka fjölmennan stað, verið vör um ykkur, sölumenn dauðans eru þar á sveimi í hverjum krók og kima. Þar sem ég er svo græn oft á tíðum, ákvað ég að gefa greyið manninum sem ég hélt að væri að vinna fyrir KB-banka sjéns og gaf mig á tal við hann. Þar sem ég setti mig í hans fótspor og fann til með honum líkt og þegar við stelpurnar vorum á vegum gallup í kringlunni og fólk bara BÚÚÚÚÚ!!!! baulaði á okkur allt um kring. Ég spjallaði létt við unga manninn, sem var bara hinn almennilegasti, hann blaðraði og blaðraði um viðbótalífeyris-sparnað og ég svaraði um hæl að ég þyrfti ekkert á því að halda þar sem ég væri ekki komin í fasta vinnu til framtíðar og ætti eftir nám. En hann hélt nú ekki, tjáði mér það að þetta væri ekki tekið af laununum mínum heldur væru þetta 2% sem allir eiga rétt á, Sólrún var með mér og hún sagði mér að hún væri skráð í þetta, svo að ég svona, ok, fyrst að þú segir það svona, þá gæti þetta nú varla skaðað, ef þetta er viðbót sem maður á rétt á. Ég skrifaði undir samninginn eins og hæna með prik í rassgatinu og gekk áleiðis að BT.

Launaseðillinn minn kom inn um lúguna 1.feb:

Lífeyrissjóður 4% :  kr. 9080

Viðbótalíffeyrissparnaður 4% : kr 9080!!!

Samtals tæpur 20 þús kall í lífeyrrissjóð! svo fór ég að kynna mér málin og komst að því að þeir halda manni í þessu í átta mánuði og ef maður vill segja sig úr þessu þá strax, fær maður aldrei þennan pening aftur, svo að ég gerði mér grein fyrir því að ég væri hugsanlega 80.000 fátækari, allt út af þessum helvítis ógeðslega manni! En faðir minn kom mér til bjargar sem og svo oft áður og tjáði mér að samkvæmt 8.mgr. 69. gr. er uppsagnarfrestur þessa drasls 30 dagar og þar sem þetta gerðis 11. jan er ég í ágætis málum, samt 9000 kalli fátækari! Passið ykkur á þessu krakkar, þessir menn eru fífl og hafa ekkert með KB-banka að gera

þetta var heilræði dagsins

og þessi maður er fífl:

veriði bless!


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 21:20:23 / heidi

æjæjæj.....

(aron og heiðdís í síðdegis-sól ágúst mánaðar raulandi og spilandi (ph:daynew) )

- ég sakna sumarsins -

- alveg viss um að þið gerið það líka stelpur -

- það er komið vetrar-þunglyndi í mig -

- samt ekki -

- langar bara til þess að gleyma þeim dögum þegar rafgeymirinn á bílnum mínum fraus á hverjum einasta morgni og vona að þeir dagar komi aldrei aftur -

sammála?

___________________

pa.hlotnaðist sá merki heiður að gerast gestabloggari í fyrsta sinn


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 14:29:37 / heidi

ohhhhhhh

mamma!

plís nennirðu ekki!!

LOL

ps. takk fyrir lánið maggie (blikk-kall)

ǟ̍牢̀ĀÝ̕韸ϓᴘϪ䱉㩙攀

» 10 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 04:38:28 / heidi

svefngaaaaaaaalsi....

ohhh....

ég get ekki farið að sofa, er búin að vera að vafra á youtube í kasti yfir allri flórunni af ógeðslega fyndna efninu sem þar er að finna, datt svo inn á öll vídjóin mín, á alveg eftir að sýna þau öll.. langar samt að sýna ykkur þetta því það er alveg svona smá uppáhalds.. ef þið fáið samt ekki söguna áður en þið horfið, finnst ykkur þetta kannski ekkert sérstaklega fyndið..

ég var sem sagt í partýi hjá baldri bett en vinir hans frá skotlandi voru í heimsókn og téður gestgjafi hringdi í mig og bað mig að koma með hressa vini sem tala ensku og svona, eru ekki feimin við það, svo að ég hringdi strax í hana svövu mína þar sem hún er útlendinga-sucker (þ.e.a.s. líkar mjög vel við útlendinga, ekki hinsvegin þúst) og hún var alveg meira en game og gummi flaut með, ég ákvað að hringja ekkert í fleirri og skellti mér í partý þar sem skoskan var í hávegum höfð og svava fór alveg á kostum í að vera góður "íslenskur gestgjafi" og talaði og talaði við útlendingana datt í framhaldinu inn í smá skosku-framburðar-kennslu úti á svölum og kom svo inn til þess að sýna okkur afraksturinn. ég tók upp vélina og myndaði allt saman, nema hvað að gummi skerst inn í leikinn með tilþrifum, hækkið þetta í botn og hlustið hvað drengurinn sagði, mér og viðstöddum fannst þetta allavegana hrikalega fyndið, veit ekki með ykkur, kannski hefðuð þið þurft að vera þarna, ég veit ekki... en allavegana, hér er það...

eitt enn, mér ljáðist að segja ykkur að gummi talar enga ensku og skotinn talar (þarf vart að taka það fram) enga íslensku...


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 19:16:01 / heidi

lesiles!

þar sem ég á alveg einstaklega erfitt með að liggja bara í sólbaði og gera ekki neitt, tók ég sem betur fer með mér staflan af alls kyns bókum úr mínum hillum jafnt sem hjördísar og tókst að fara yfir nokkur stykki í rólegheitunum á kúbu, mig langar að segja mína skoðun á bókunum þar sem ég veit að vinkonur mínar kunna að meta það og vil fá hummara frá ykkur í staðinn ok?

Bók#1 - Viltu vinna milljarð (eða rupien rupien (hlæjikall))

þórdís fékk þessa í jólagjöf og hafði ég einmitt fest kaup á eina slíka handa pabba mínum í afmælisgjöf svo að tvö stykki voru til á heimilinu og var ég sú fyrsta til að lesa og var svo ánægð með hana að allir hinir fjölskyldumeðlimir fylgdu á eftir, þetta er fyrsta bók Vikas Swarup. Hún var ótrúlega áhrifamikil, minnti líka ótrúlega mikið á flugdrekahlauparann sem er einmitt mín uppáhaldsbók. Ég fékk alveg tár í augun og hló pínu upphátt öðruhvoru, gerist á indlandi þar sem ungur munaðarlaus strákur sem kann ekki og veit ekki neitt vinnur leik sem kallast viltu vinna milljarð öllum að óvörum, svo fer bókin í gegnum hvernig hann vissi svörin við öllu þessu, ótrúlega góð bók, mæli eindregið með henni.

4/5 í einkunn

Bók#2 - Behind closed doors

bókin fjallar um uppeldi barna í einstaklega viðbjóðslegri fjölskyldu, sagt af miðju-barninu sem fékk einna metsu barsmíðarnar og kynferðisáreitina. Jenny Tomlin skrifar þessa sannsögulegu bók og fer hún alveg einstaklega nákvæmlega í alla "díteila" sem er frekar erfitt að lesa á köflum. En þess má til gamans geta að Jenny er einmitt móðir Martine McCutcheon sem leikur sætu dökkhærðu stelpuna sem byrjar með hugh grant í love actually. Bókin fer ýtarlega í allan viðbjóðinn og ógeðið sem fór fram á þessu heimili án þess að nokkur í kring gerði nokkuð í því. Ég fékk þessa bók lánaða hjá hjördísi og hún mælti svona bæði og með henni, ég get ekki mælt með henni, ég kláraði hana einfaldlega til þess að sjá það að á endanum myndi hún fara vel (eða ég vonaði það amk). Að mínu mati er þetta viðbjóðsleg bók og ekki efni sem ég gæti lesið aftur. En samt sem áður, fínt að hafa lesið hana og manneskjan sem skrifar hana einstaklega hugrökk.

1,5/5 í einkunn

Bók#3 - Alkemistinn

las þessa á leiðinni heim, hef reyndar ekki lesið neitt eftir Paulo Coelho fyrr en ætla að breyta því núna, þessi bók fjallar um ungan strák sem fer langa leið í að leita að því sem hann girnist mest og gerist ýmislegt á leið hans. Ég hef heyrt fullt af fólki tala um að hún sé ekkert spes, eins og þórdís, hún las hana á undan mér og fannst hún bara "boring" en mér fannst hún góð. Held það fari líka soldið eftir því hvar maður er staddur í lífinu, fólk sem er ekki mikið að spá í framtíðinni fílar hana kannski ekki. Ótrúlega mikið af svona góðum molum í henni og ég mæli með henni, mér fannst hún drullu góð. Get reyndar ekki alveg verið sammála henni súsönnu vinkonu hans gumma um að gefa henni eitt af 10 meistarastykkjum veraldar, en góð var hún.

3,5/5 í einkunn

Bók#4 - The other side of the story

Marian Keyes er svona rithöfundur sem semur bara svona bækur! stelpubækur út í gegn sem er einmitt uppá-uppá-uppáhald hjördísar, hún lánaði mér þessa líka, hún fjallar um þrjár konur í london sem allar tengjast á einhvern átt (yfirleitt samt einhverjum manni) en hún er skemmtileg, ég er nú reyndar ekki alveg búin með hana þar sem hún er um 700 blaðsíður en ég er á góðri leið með hana og hún er bara alveg rosalega skemmtieg, ógeðslega gaman að lesa svona mikið bull öðru hverju samt alltaf eitthvað sannleikskorn í hverri sögu, ég mæli með henni.

4/5 í einkunn

Bók#5 - something borrowed

las hana reyndar áður en ég fór út og tók mig smá tíma þar sem ég gat ekki sett mig inn í hana í byrjun mér fannst hún vera svo mikið bull! Fjallar sem sagt um konu sem á sína bestu bestu æskuvinkonu og kynnir hana fyrir strák sem hún er að læra lögfræði með, þau byrja saman (sem sagt hann og vinkona stelpunnar)og trúlofa sig eftir einhvern tíman, en bókin byrjar einmitt þar sem 2 mánuðir eru í giftinguna þeirra og hún (stelpan sem kynnti þau) byrjar að halda við hann. Ég sagði margsinnis við hjördísi hvaða helvítis kjaftæði er þetta en hún hvatti mig til þess að klára hana sem ég sé engan veginn eftir, vegna þess að hún endar ROSALEGA! og næsta bókin heitir einmitt, something blue og er það þá besta vinkonan sem segir alla söguna frá sinni hlið!

Hjördís festum kaup á henni sem fyrst!

en something borrowed fær sem sagt

2,5/5 (bara fyrir ágætis endi, hitt er krapp)

Bók#6 - Eineygði kötturinn kisi og hnakkarnir

ótrúlega spes bók, samt fínasta afþreying, greinilegt að höfundi er mikið illa við björn jörund, bubba morthens, geir ólafs og fleiri. Mikið talað um kúk og piss og brúnkukrem og fleira, ég hafði mjög gaman að heinni, ég á eflaust eftir að lesa hana aftur, ég ætla samt ekkert að gefa henni einkunn þar sem þetta er meira svona eins og einn stór brandari heldur en bók.

 

þetta var bókagagrýni dagsins! komið með einhverjar hugmyndir að lesefni, i´m kinda short!

kv. heiðdís fullgildur bókagagnrýnandi (broskall)


» 15 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 18:11:52 / heidi

my finger is on the button!

push the button!

IMG 1153

nýjustu myndirnar, meira samt á leiðinni, úff að ég skuli nenna þessu...

ps. ég get ekki kommentað! hvað er það?


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 15:27:54 / heidi

saturday! saturday! saturday it´s a saturdayyyyyiiieeeeiiieeeiieeiieee!

svona kvöld eins og laugardagskvöldið eru svona partý og skemmtilegheit, sem ég bókstaflega lifi fyrir! var einmitt að tala um það um daginn við ásu að mig minnir, að maður er bókstaflega farinn að lifa fyrir helgarnar, bíður alltaf spennt alla vikuna eftir að næsta helgi detti inn og vonast til þess að hún uppfylli kröfur síðari djamma og jafnvel toppi þau í hvert skiptið! djammið síðastliðinn laugardag var einmitt eitt slíkt. Árshátíð vinahópsins eða síðunnar okkar (sem reyndar enginn veit af nema við félagar af góðum og gildum ástæðum) heima hjá köllu með tilheyrandi, ég og kalla byrjuðum á því að elda dýrindismáltíð fyrir elskurnar sem féll heldur betur vel í kramið, svo virðist það nú vera þannig að maður reynir yfirleitt aldrei að koma tómhentur í partý, svo að ég kom með bongótrommurnar, hristurnar og áslátturshljóðfærin sem ég festi kaup á á kúbu, áramótakransa um hálsinn, stjörnuljós og kúbuvindla (þar sem ég missti nú af áramótunum) og kalla var svo drjúg að splæsa í 100 stk meterslöng rör sem við brúkuðum í megabolluna sem kalla gerði! Svo að þemað var víst áramótakúba! ég er farin að hallast að því að ég geti bara ekki verið í partýi nema það sé eitthvað ákveðið þema, eða amk, búningar eða fylgihlutir eða þess háttar!

svo kom að sjálfsögðu að því að bollan fór að segja allsvakalega til sín, þar sem ég bjó til alveg einstaklega flókinn leik þar sem hver sá sem var að drekka úr bollunni með röri átti að setja hendur fyrir aftan bak og drekka! og sá sem yrði fyrst til þess að hlæja átti að þamba bolluna í 10 sekúnudur! GÓÐUR LEIKUR heiðdís! elsku margrét, ég hef nú reyndar ekki heyrt í henni síðan á lau, en ég ætla bara rétt að vona að hún sé við góða heilsu, við náðum þó amk. að semja einn góðan dans við umm daumdara! heheh og fá ógeðslega góða salsakennslu frá allý eða var það mambó eða djive eða pasadoble? heheh. Svo var að sjálfsögðu haldið í bæinn á uppáhaldsbarinn 11. þar sem ekki var hægt að snúa sér heilan hring án þess að fara í sleik við alla (sem sumar af okkar gerðu við skemmtilegar undirtektir umkringdra), svo að förinni var haldið á annan bar sem ég nenni ekki einu sinni að nefna vegna þess að ég skammast mín fyrir að fara þangað inn, en þar varð köllu víst eitthvað misboðið og fékk heilan bjór yfir hárið og tók vinkonuna bara hálstaki! sóla gat víst ekki dansað og hvarf á braut og hjördís var bara í sleik..

takk fyrir kvöldið stelpur, ég er ekkert að grínast eð ég er alveg til í að hafa bara árshátíð aðra hverja helgi, það er alltaf svo gaman hjá okkur! ég set inn myndir á eftir, myndavélin mín varð eftir hjá köllu, annars ætla ég að stela nokkrum hérna af glyðrusíðunni og sólu ;)

tjá!


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 18:36:05 / heidi

morgunstund gefur brund í munn! hahahha OJJJJ,.....

æji, ég var komin með ógeðslega flotta og langa færslu frá árinu 2006, en ég fékk þetta meil, ég varð bara að deila því með ykkur vegna þess að þetta er eitt það viðbjóðslegasta sem ég hef séð... kynlíf metið eftir verðleika, einhver danskur leikur, æji, nenni ekki að lýsa þessu frekar, bara enjoy..

ps.hin færslan verður bara að bíða til morgundags

pps.nýjar myndir komnar!! fullt fullt fullt!!

ppps. stelpur, ég er komin með megakomment á síðuna okkar! VANTAR AÐGANGINN KALLA?

þessi var víst bara á slik, 10 krónur eða eitthvað, samt alveg allt of mikið.. ojjj!

ok, þessi getur bara ekki verið fótósjoppuð, vá ég get ekki hætt að hlæja..!! ef þessi getur hözzlað, þá getur heimir það líka! hahahha

haha2

hahahahhahahhahahhahahah

haha3

ok, EKKI NETT!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

haha4

sterar eða? njeeeeee

haha5

æji, hahahha, þetta er yndislegt mar..

haha6

svo var það þessi sem var víst dýrastur, einhverjar 5000 danskar eða eitthvað og hann fær alveg kredit fyrir þennan, ég meina hver væri ekki til í að hoppa upp í rúm með fílamanninum... aaaaaaaaaaaaaaaaaaaa... OJJJJJ


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 00:49:22 / heidi

heiddis i menningarsjokki:

,,hi, tar sem eg geri mer grein fyrir tvi ad allir eru a tessari stundu ad glapa a skaupid og tvi enginn a msn sem eg get oskad gledilegs nys ars, nema sharon i london, verd eg bara ad gera tad i gegnum tetta blessada blogg mitt og a medan eg geri tad vil eg kvedja hid gamla sem reyndist mer og minum ekkert neitt alveg tad besta, vildi ad eg gaeti skrifad stutta tolu um tad,  en eg nenni tvi engan veginn tar sem klukkan er ad slefa i 19:00 her og aramota gledin ad fara ad ganga i gard herna uti i hotelgardi, kuba er aedi, vildi ad eg gaeti sagt hid sama um matinn, en kannski er eg bara allt of godu von, hotelid er adeins flottara en eg hafdi buist vid, thernurnar herna gerdu svani ur handklaedum minu og thordisar og skildu eftir sma note (en thess ma geta ad herna a cubu, thykir einna best ad starfa sem therna, thar sem thar thena margfalt meira en laeknar) en ok, ekki meira babbl, eg tharf ad fara ad hella i mig, pabbi er farin ad setja feita pressu!

Feliz año nuevo!

eda gledilegt nytt ar!

takk fyrir gamla allt thid folk sem hafid verid alveg faranlega yndislega god vid mig og  mina fjolskyldu tetta arid! eg hefdi an efa ekki getad komist i gegnum tad an ykkar sumra! (ef eg hefdi tima myndi eg fara i sleik vid ykkur oll) ekki kannski samt afa eda eitthvad, en ok..

ps. hjordis min, good luck with.. u know who! og ef thu mannst ekki tha taladi eg vid tamningarmanninn og smidinn personulega adur en eg hoppadi upp i vel, svo ad hann er mer engin nygraedingur! hehe


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 03:59:12 / heidi

þórunn!

til hamingju með afmælið ástin mín!



loksins orðin 22!

knúsikoss

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Leitarbox

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti